Persónuvernd

Síðast uppfært 14. nóvember 2026

Hér kemur fram hvaða persónuupplýsingum Björgum Kristnesspítala safnar, í hvaða tilgangi og hvaða rétt þú átt.

Ábyrgðaraðili

Björgum Kristnesspítala, hollvinasamtök um endurbætur og áframhaldandi endurhæfingu á Kristnesi. Fyrirspurnir um persónuvernd sendist á stjorn@bkrs.is.

Félagaskrá

Þegar þú skráir þig í samtökin söfnum við eftirfarandi upplýsingum:

  • nafni og netfangi,
  • símanúmeri og sveitarfélagi, ef þú kýst að gefa þær upp.

Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að halda félagaskrá, boða til funda og senda fréttir af starfi samtakanna. Grundvöllur vinnslunnar er aðild þín að samtökunum og samþykki þitt. Upplýsingarnar eru ekki seldar eða afhentar öðrum.

Félagaskráin er varðveitt í Google-aðgangi samtakanna (Google Forms og Google Sheets) og í tölvupósti samtakanna. Aðeins stjórn hefur aðgang að henni. Upplýsingum er eytt þegar þú segir þig úr samtökunum.

Styrkir

Ef þú styrkir samtökin með millifærslu sjáum við nafn greiðanda og upphæð í bankayfirliti samtakanna. Þær upplýsingar eru aðeins notaðar í bókhaldi og varðveittar eins lengi og lög um bókhald krefjast.

Vefurinn

Vefurinn notar engar vafrakökur og enga vefmælingu eða auglýsingarakningu. Leturgerðir eru hýstar á vefnum sjálfum, ekki sóttar til þriðja aðila. Hýsingaraðili vefsins (Cloudflare) skráir tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölur, í stuttan tíma til að tryggja öryggi og rekstur.

Hnappurinn „Deila á Facebook“ opnar vef Facebook aðeins ef þú smellir á hann; síðan hleður engu frá Facebook að fyrra bragði.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig, fá þær leiðréttar og láta eyða þeim. Sendu okkur línu á stjorn@bkrs.is.

Ef þú telur að ekki sé farið rétt með upplýsingar um þig getur þú leitað til Persónuverndar,personuvernd.is.